Employee trips
/
Sköpun & Upplifun
/
Reykjavík
/
Fjórhjólaferð
About the trip
Hver leynir á sér sem sushi meistari?
Setjið vinnuna aðeins til hliðar og takið fram sushi-motturnar! Hér fær hópurinn að spreyta sig á sushi-gerð, læra réttu handtökin og að sjálfsögðu njóta afrakstursins saman.
Í sushi skólanum hjá Umami Sushi fær hópurinn að kynnast töfrunum á bak við gott sushi frá A–Ö. Axel Björn Clausen leiðir hópinn í gegnum ferlið og kennir réttu handtökin allt frá meðhöndlun hráefnis og bragðsamsetningum yfir í að rúlla sushi sem lítur næstum því of vel út til að borða.
Stemningin er afslöppuð og skemmtileg og allir fá að taka virkan þátt, hvort sem þeir eru vanir sushi snillingar eða hafa aldrei haldið á sushi mottu áður.
Auðvitað kemur besti hlutinn í lokin: hópurinn sest niður og nýtur þess sem hann hefur búið til saman.
Frábær hópafþreying fyrir vinnufélaga sem vilja prófa eitthvað öðruvísi, læra nýja takta og eiga skemmtilega stund saman með nóg af sushi í kaupbæti.
Tilvalið fyrir starfsmannadag, hópefli, óvissuferð eða skemmtilegt upphaf á kvöldi.
Innifalið
• Leiðsögn í sushi-gerð
• Kennsla í meðhöndlun hráefnis
• Sushi-rúllur og mismunandi bragðsamsetningar
• Allt hráefni og búnaður
• Þið njótið þess sushi sem þið útbúið
• Eitt vínglas fylgir með
Lengd: um 2 klst.
Staðsetning: Hafnartorg Gallerý, Geirsgata 17, 101 Reykjavík
Inquiry about this service
Inquiry about this service
Submit an inquiry and we will contact you with confirmation, pricing, and more information.
No payment is being made at this time — we will contact you to confirm your booking.
